
Laufey og Lovísa
Við systurnar vorum svo heppnar að vera í fæðingarorlofi á sama tíma. Á tímabili sem átti að snúast um ró og samveru fundum við oft fyrir þeim miklu kröfum sem konur standa frammi fyrir á hverjum degi.
Skyndilega var vinnan farin í hlé, en í staðinn tók við eitt stærsta og mikilvægasta hlutverk lífsins. Samhliða því að vera til staðar fyrir fjölskylduna átti að hreyfa sig, næra sig vel, eiga tíma með vinum, halda heimilinu gangandi, sinna sjálfri sér og einhvern veginn ná utan um allt hitt líka.
Það var þegar við fengum tækifæri til að eyða helgi með hópi af konum, þar sem allt var skipulagt og hugsað um okkur, að hugmyndin að Rökkurstund fæddist. Í fyrsta sinn í langan tíma fundum við fyrir algjörri slökun, nærveru og þeirri einstöku tilfinningu að þurfa ekki að bera ábyrgð á neinu nema að njóta augnabliksins.
Þá vissum við að við vildum skapa slíkt rými fyrir aðrar konur.
Rými þar sem hægt er að hægja á sér, anda dýpra og sleppa takinu.
Rými þar sem engar kröfur eru gerðar nema þær að mæta eins og maður er og njóta. Rými fyrir tengingu, gæðastundir, hlátur, sköpun og hvíld.